Staðfesting

Þegar þú hefur lokið við að bóka í bókunarkerfinu færðu tölvupóst með bókunarnúmeri og kvittun fyrir þjónustukaupunum. Kvittun jafngildir ekki afgreiðslu, við áskiljum okkur rétt til að bakfæra pöntun ef grunur um einhvers konar misferli vaknar.

Þegar þú hefur lokið við kaup á gjafabréfi í gjafabréfakerfinu færðu tölvupóst með númeri gjafabréfs sem hægt er að nota til að bóka keypta þjónustu í bókunarkerfinu. Einnig færðu kvittun fyrir kaupunum. Kvittun jafngildir ekki afgreiðslu, við áskiljum okkur rétt til að bakfæra pöntun ef grunur um einhvers konar misferli vaknar.

 

 

Greiðslur og öryggi við pantanir – dulkóðun

Eftirfarandi kort er hægt að nota í bókunarkerfi okkar:Visa
Visa electron
Mastercard
Maestro
Greiðslan mun birtast á kortayfirliti þínu á sama hátt og almennar færslur í verslun.

 

Verð

Uppgefið verð í bókunarkerfi okkar er í íslenskum krónum. Athugið að verðbreytingar eru ekki auglýstar fyrirfram. Hægt er að velja að greiða fullt gjald strax í bókunarferlinu eða greiða staðfestingargjald sem fæst ekki endurgreitt nema afbókað sé með 24 tíma fyrirvara.

Þjónustan er ekki virðisaukaskattskyld. Vinsamlegast athugaðu að verðið i bókunarkerfinu getur breyst án fyrirvara og að öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur.

 

Afbóknair/ endurgreiðsla

Við bjóðum upp á endurgreiðslu ef afbókun berst innan 24 tíma áður en bókaður tími byrjar. Afbóka verður með því að smella á vefslóð (URL) sem fylgdi með í staðfestingapósti fyrir bókuninni.

Einnig er hægt að hringja í okkur og afbóka innan 24 tíma áður en viðtal hefst. Síminn er +354 693-2197.

 

Öryggi vefsvæðis

Við setjum öryggi viðskiptavina okkar á oddinn. Við notum bestu tækni sem völ er á til að tryggja að allar greiðslur séu öruggar. Notast er við SSL kóðun til að tryggja dulkóðun kortanúmersins og annara persónugagna, en kóðunin uppfyllir ströngustu kröfur um gagnavernd á netinu.

Við vistum engar kortaupplýsingar á vefþjónum okkar eða vefsvæðum.

 

Upplýsingar um félagið:

Jóndi og Gagga slf.
kt. 491007-1330
Heimili Kjarrhólum 3
800 Selfossi
Sími +354 693 2197
email: gagga@thesunflower.is

 

Varnarþing

Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir íslenskum dómstóli.

Hafðu samband

Ég er ekki við núna, en sendu mér skilaboð og ég hef samband

0